Κυριακή 14 Φεβρουαρίου 2016

KLASSÍSKA TRÍÓIÐ

11 NÆTUR/12 DAGAR MYKONOS, NAXOS og SANTORINI

Dagur 1 - koma og transfer á hótel í Aþenu þar sem gist er fyrstu nóttina

Dagur 2 - snemma morguns er náð í ykkur á hótelið og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til eyjunnar Mykonos. Siglingin tekur ca. 4 klt. Þegar þangað er komið er náð í ykkur niður á höfn og farið með ykkur á hótel þar sem þið dveljið næstu 2 nætur.(Dagar 2 og 3)



MYKONOS er eyja ríka fólksins í Grikklandi þar sem snekkjur og villur skiptast um að ná athygli ferðamannsins. Innlendir og erlendir leikarar og söngvarar heimsækja eyjuna á ári hverju og margir eiga þar sumarhús. Eyjan er fræg fyrir fyrir fallegu höfnina með hvítu húsunum sem eru skreytt með hurðum og gluggum á alls konar litum og litlu mjóu göturnar sem mynda eins konar völundarhús þar sem gaman er að villast. Vindmyllurnar sem gnæfa á hæðinni yfir bænum setja fallegan svip á heildarmyndina.

Eftir 2 skemmtilega daga á Mykonos verður haldið eyjunnar Naxos. Náð er í ykkur á hótelið ykkar og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem siglir með ykkur til Naxos. Þegar þangað er komið er náð í ykkur niður á höfn og farið með ykkur á hótel þar sem þið dveljið næstu 3 nætur.(Dagar 4,5 og 6)

NAXOS er ein af eyjunum í svokölluðum hringeyjaklasa í miðju Eyjahafinu. Naxos á sér langa sögu, en þar settust Krtítverjar að fyrstir manna og það er kannski þess vegna sem eyjan minnir um margt á Krít. Eitt helsta dæmið um um forna frægð eyjunnar er stór og mikill hurðarkarmur úr turmarmara sem stendur við insiglinguna, það eina sem eftir er af hofi Appollós frá 6. öld f.kr. Yfir bænum gnæfir einnig virki frá tímum Feneyjamanna og í virkishverfinu eru sjarmerandi mjó bogagöng og litlir inngarðar sem hýsa verslanir og veitingastaði.
Stutt er á fallega strönd er í næsta nágrenni við bæinn og dásamleg lífsreynsla er að leigja bíl eða fara með rútu upp í sveitaþorp eyjarinnar þar sem er eins og lífið hafi staðið í stað í áratugi. Naxos er fræg fyrir hlýtt viðhorf og frábæra gestrisni íbúanna sem taldir eru matreiða besta mat í Grikklandi. Frá Naxos er einnig hægt að fara í dagsferðir til eyjanna í kring, þ.á.m. Mykonos og Santorini. Svona dagsferðir eru einmitt inni í ferðaáætuninni hjá okkur.

images-22.jpeg

Næst á dagskrá er stórkostlega Santorini. Farið er með ykkur að höfninni á Naxos þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til Santorini. Þegar þangað er komið er náð í ykkur niður á höfn og farið með ykkur á hótel þar sem þið dveljið næstu 3 nætur. (Dagar 7, 8 og 9)

SANTORINI er eyja sem löngum hefur verið kölluð hin fegursta í heimi. Eyjan eins og hún er í dag myndaðist í miklu sprengigosi árið 1628 f.kr., þegar helmingur eyjarinnar sökk í sæ og myndaði gíg sem er með þeim stærstu sem af er vitað. Innsiglinginn í gegnum gíginn er ógleymanleg því útsýnið upp á land er stórfenglegt þar sem tveir stærstu bæjirnir hanga utan í gígbarminum. Eyjan er fræg fyrir stórkostlegt landslag, forna sögu, þ.á.m. bæinn Akrótiri sem hvarf undir ösku í sprengigosinu mikla, og hellahúsin sem byggð eru inn í klettinn og virðast oft hanga í lausu lofti.

Á Santorini er dvalið í 3 nætur og það er um að gera að rölta um bæjina tvo þar sem húsin eru eins og sykurmolar sem breiðast um klettinn og yfir gígbrúina. Stórkostlegt er að ganga á gígbrúninni frá höfuðstaðnum Fira yfir til listamannabæjarins Oia, en sú ganga tekur 2 - 3 klt. Myndefnin eru óendanleg og ógleymanlegt er að setjast niður á kaffihus eða veitingahús 
á gígbrúninni og virða fyrir sér stórkostlegt útsýnið yfir gíginn.


Þá fer ferðinni að ljúka og þegar dvöl ykkar á Santorini tekur enda, er annaðhvort hægt að fara með skipi til Aþenu eða með flugi. Í Aþenu er síðan tekið á móti ykkur og farið með ykkur á hótel í miðborginni. Næsta dag verður farið í skoðunarferð um Aþenu, en í eftirmiðdaginn er ykkur frjálst að skoða borgina upp á eigin spýtur.


AÞENA höfuðborg Grikklands er borg andstæðnanna. Annars vegar er borgin vestræn nútímaborg, en hins vegar minnir hún á lítið þorp þar sem mjóar götur og aldagömul hús keppast við að ná athygli vegfarandansSaga borgarinnar nær aftur um þúsundir ára, eins og hin fögru hof uppi á Akrópólishæð bera vitni um. Fallegar nýklassískar byggingar eru einnig áberandi í borginni og þar er helst að nefna gömlu konungshöllina, fornminjasafnið, háskólabyggingarnar og Zappeion sýningarhöllina. Ekki má gleyma marmaraleikvangnum Kallimarmaro sem reistur var fyrir fyrstu ólympíuleika nútímans. 

Elsta hverfið í Aþenu liggur í hæðinni fyrir neðan Akrópólis og ber heitið Plaka. Þar er alltaf mikið líf jafnt á degi sem nóttu. Á nýtískulegum eða hefðbundnum kaffihúsum, börum g veitingastöðum má finna allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Grísk hönnun og minjagripir eru áberandi í verslunum í gamla bænum og þar ættu allir að geta nælt sér í eitthvað sem hjartað girnist.

Dagur 12 - transfer út á flugvöll og brottför 


DREYMIR ÞIG Í BLÁU OG HVÍTU?

11 NÆTUR/12 DAGAR SIFNOS OG FOLEGANDROS

Dagur 1 - koma og transfer á hótel í miðborg Aþenu

Dagur 2 - snemma morguns er náð í ykkur á hótelið ykkar og farið með ykkur niður á höfnina í Pireus þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til eyjunnar Sifnos þar sem þið gistið næstu 4 nætur.(Dagar 2, 3 4 og 5)

SIFNOS er ein af Hringeyjunum. Til forna var eyjan ein af hinum ríkustu í Eyjahafinu vegna gull, silfur og blýnámanna sem þar voru. Í dag er Sifnos friðæl og falleg eyja með hvítum og bláum þorpum, vinsæl hjá siglingaköppum og ferðamönnum sem eru í leit að friði og ró. Þorpin Artemonas og Kastro eru byggð í sjarmerandi sykurmolastíl Hringeyjanna og á kvöldin lifnar höfuðstaðurinn Appolonia til lífsins með kaffistöðum, börum og veitingastöðum sem bjóða upp á gómsæta sérétti eyjarinnar. Sifnos er einnig vinsæl brúðkaupseyja og Grikkir jafnt sem  útlendingar kjósa að gifta sig í einni af hinum 360 kirkjum eyjarinnar. Þar er kirkja hinna sjö píslarvotta á myndinni hér fyrir neðan sérlega vinsæl.



Þegar dvöl ykkar á Sifnos lýkur verður náð i ykkur á hótelið ykkar og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til Folegandros. Þegar þangað er komið er náð í ykkur niður á höfn og farið með ykkur á hótel þar sem þið gistið næstu 4 nætur.(Dagar 6, 7, 8 og 9)




FOLEGANDROS er hefðbundin grísk eyja þar sem íbúarnir halda upp á forna siði og venjur. Maturinn er einfaldur, grískur, upprunalegur og sérlega góður. Bærinn hefur oft verið valinn af hinum ýmsu ferðablöðum sem einn af fallegustu litlu bæjum í Evrópu. Á Folegandros er hægt að virða fyrir sér í rólegheitum húsin sem eru kölkuð skjannahvít í hinum klassíska Hringeyjabyggingarstíl og eru skreytt litríkum blómum. Strendurnar eru fámennar og sjórinn tekur öll litbrigði hins bláa lits.



Eftir 3 daga á þessari einstöku eyju er kominn tími á að snúa aftur til meginlandsins. Náð er í ykkur á hótelið ykkar og farið með ykkur að höfninni þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til Aþenu. Í Aþenu er tekið á móti ykkur og farið með ykkur á
hótel í miðborginni þar sem þið dveljið síðustu 2 næturnar.(Dagar 10 og 11)



AÞENA höfuðborg Grikklands er borg andstæðnanna. Annars vegar er borgin vestræn nútímaborg, en hins vegar minnir hún á lítið þorp þar sem mjóar götur og aldagömul hús keppast við að ná athygli vegfarandansSaga borgarinnar nær aftur um þúsundir ára, eins og hin fögru hof uppi á Akrópólishæð bera vitni um. Fallegar nýklassískar byggingar eru einnig áberandi í borginni og þar er helst að nefna gömlu konungshöllina, fornminjasafnið, háskólabyggingarnar og Zappeion sýningarhöllina. Ekki má gleyma marmaraleikvangnum Kallimarmaro sem reistur var fyrir fyrstu ólympíuleika nútímans. 

Elsta hverfið í Aþenu liggur í hæðinni fyrir neðan Akrópólis og ber heitið Plaka. Þar er alltaf mikið líf jafnt á degi sem nóttu. Á nýtískulegum eða hefðbundnum kaffihúsum, börum g veitingastöðum má finna allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Grísk hönnun og minjagripir eru áberandi í verslunum í gamla bænum og þar ættu allir að getað nælt sér í eitthvað sem hjartað girnist.

Dagur 12 - transfer út á flugvöll og brottför

ÆVINTÝRAFERÐ Í JÓNAHAFI

11 NÆTUR/12 DAGAR AÞENA, PELÓPSSKAGINN OG ZAKYNÞOS

Athugið að þessa ferð verður að fara með bílaleigubíl eða rútu (fyrir hópa)

Dagur 1 - koma og transfer á hótel í Aþenu þar sem gist er fyrstu 2 næturnar

AÞENA höfuðborg Grikklands er borg andstæðnanna. Annars vegar er borgin vestræn nútímaborg, en hins vegar minnir hún á lítið þorp þar sem mjóar götur og aldagömul hús keppast við að ná athygli vegfarandansSaga borgarinnar nær aftur um þúsundir ára, eins og hin fögru hof uppi á Akrópólishæð bera vitni um. Fallegar nýklassískar byggingar eru einnig áberandi í borginni og þar er helst að nefna gömlu konungshöllina, fornminjasafnið, háskólabyggingarnar og Zappeion sýningarhöllina. Ekki má gleyma marmaraleikvangnum Kallimarmaro sem reistur var fyrir fyrstu ólympíuleika nútímans. 

Dagur 2 - skoðunarferð í Aþenu og frjáls dagur í eftirmiðdaginn.

Dagur 3 - Við komum með bílaleigubílinn til ykkar og ævintýraferðin hefst með því að keyra að Kórinþuskurðinum þar sem gaman er að stoppa til að sjá þennan skurð sem var grafinn á siðari hluta 19. aldar og skildi þannig að meginlandið og Pelópsskagann. Fyrir þá sem eru sögulega sinnaðir er einnig skemmtilegt að gera stutt stopp í fornu borginni í Kórinþu. Á leiðinni til Nafplion sem er fyrsti náttstaðurinn í ferðinni er gaman að koma við í Epidárus, en þar er að finna best varðveitta útileikhús Grikklands með besta hljómburðinum af öllum fornum útileikhúsum í heiminum.

NAFPLION er yndisleg borg við Argolisflóann sem hreykir sér af því að hafa verið valin fyrsta höfuðborg hins frjálsa Grikklands. Í bænum er sjarmerandi feneyskur bæjarkjarni og á hæðinni fyrir ofan bæinn gnæfa varnarveggir frá tímum Tyrkja. Upp á Palamides virkið eru 999 tröppur, en þegar upp er komið blasir við stórkostlegt útsýni yfir borgina og flóann. Mikinn svip á bæinn setur líka lítill kastali úti í sjó sem heitir Bourtsi og marglitu þríburablómin sem eru út um allt. Hér er gist í eina nótt.


Dagur 4 - Áfram skal haldið þvert yfir Pelópsskagann í gegnum fagurt landslag til Ólympíu.

ÓLYMPÍA er staðsett í Dal Guðanna eins og hann er kallaður og þar eru rústir helgasta staðarins í Grikklandi hinu forna þar sem Seifur var dýrkaður og íþróttaleikar haldnir honum til heiðurs. Ólympíuleikar voru haldnir fjórða hvert ár í yfir tíu aldir og endurreistir í Aþenu árið 1896.  Hér er gist í eina nótt.

Dagur 5 - Í dag er haldið áfram til eyjunnar Zakynþos í Jónahafinu. Frá Ólympíu er keyrt í tæpa 2 klt. til Kyllini á vesturströnd Pelópsskagans, þaðan sem farið er með bílaferju yfir til Zakynþos. Þegar þangað er komið er tekið á móti ykkur og farið með ykkur á hótelið þar sem þið dveljið næstu 4 nætur. (Dagur 5, 6, 7 og 8)



ZAKYNÞOS eða Zante eins og hún er oft kölluð, tilheyrir þyrpingu af eyjum sem bera nafnið Sjöeyjar (Eftanisa) og eru í Jónahafinu á milli Grikklands og Ítalíu. Eyjan er náttúrufalleg og gróðursæl og var þess vegna kölluð ,,Il fiore di Levante'' sem þýðir ,,Blóm austursins'' af Feneyjamönnum. Hún var bitbein hinna ýmsu borgríka og þjóða í gegnum tíðina, en á síðari hluta 19. aldarinnar sameinaðist hún Grikklandi. Hún er þekktust fyrir stórkostlega strönd sem kölluð er Skipbrotið, en fólk kemur alls
staðan að úr heiminum til að líta hana augum. Ströndin varð að hluta til af manna völdum fyrir 33 árum síðan þegar skipið Panagiottis sem flutti ólöglegan farm af sígarettum, strandaði á eyðilegri strönd á norðvesturhluta hennar. Ströndin hét þá Agios Georgios, en hefur verið kölluð Skipbrotið ætíð síðan.



Það er um að gera að skoða þessa stórkostlegu strönd bæði af landi og af sjó og keyra um eyjuna til að njóta náttúrufegurðar hennar, gestrisni íbúanna og matarins sem er gómsæt blanda af grísku og ítölsku eldhúsi.


Dagur 9 - eftir dásamlega dvöl á þessari fallegu eyju skal haldið til baka til Aþenu. Aftur er siglt yfir til meginlandsins og keyrt aðra leið til baka yfir Pelópsskagann. Þegar til Aþenu er komið er bílnum skilað og gist verður næstu 3 nætur í höfuðborginni eða í strandbæ rétt fyrir utan borgina.


Dagur 10 - í dag eruð þið sótt snemma morguns á hótelið ykkar og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til þriggja eyja í Saróníska flóanum, Egínu, Poros og Hydru. Þessi sigling er mjög vinsæl hjá heimamönnum jafnt sem ferðamönnum, því ekki þarf að fara langt til að komast í gríska eyjastemningu. Eyjarnar eru hver annari yndislegri, en Hydra stendur sér á parti, því þar eru engir bílar.


Dagur 11 - í dag er kjörið að skoða Aþenu á eigin vegum, njóta mannlífsins og markaðanna og ekki síst Plaka sem er
elsta hverfið í Aþenu og liggur í hæðinni fyrir neðan Akrópólis. Þar er alltaf mikið líf jafnt á degi sem nóttu. Á nýtískulegum eða hefðbundnum kaffihúsum, börum g veitingastöðum má finna allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Grísk hönnun og minjagripir eru áberandi í verslunum í gamla bænum og þar ættu allir að getað nælt sér í eitthvað sem hjartað girnist.

Dagur 12 - transfer út á flugvöll og brottför















Παρασκευή 12 Φεβρουαρίου 2016

           FERÐIR Í GRIKKLANDI SUMARIÐ 2016 Á VEGUM GRIKKLANDSGALDURS   

 



Við höfum hannað eftirfarandi ferðir í Grikklandi fyrir sumarið 2016

Athugið að allar ferðir eru hannaðar með bæði einstaklinga og hópa í huga, en þeim er hægt að breyta eftir þörfum og aðstæðum hvers og eins.

Athugið einnig að við setjum engin verð hér inn vegna þess að þau eru breytileg eftir því á hvaða tíma ferðin er farin, fjölda í ferð og því hvernig hótel eru valin. Þeir sem hafa áhuga á þessum ferðum eru beðnir að hafa samband á th.bv@hotmail.com

DREYMIR ÞIG Í BLÁU OG HVÍTU?

11 NÆTUR/12 DAGAR NAXOS og AMORGOS

Dagur 1 - koma og transfer á hótel í Aþenu þar sem dvalið er fyrstu nóttina.

Dagur 2 - snemma morguns er komið og náð í ykkur á hótelið og farið með ykkur á höfnina í Pireus þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til eyjunnar Naxos. Á Naxos er dvalið í 5 nætur. 


NAXOS er ein af eyjunum í svokölluðum Hringeyjaklasa í miðju Eyjahafinu. Naxos á sér langa sögu, en þar settust Krítverjar að fyrstir manna og það er kannski þess vegna sem eyjan minnir um margt á Krít. Eitt helsta dæmið um um forna frægð eyjunnar er stór og mikill hurðarkarmur úr marmara sem stendur við innsiglinguna, það eina sem eftir er af hofi Appollós frá 6. öld f.kr. Yfir bænum gnæfir einnig virki frá tímum Feneyjamanna og í virkishverfinu eru sjarmerandi mjó bogagöng og litlir inngarðar sem hýsa verslanir og veitingastaði. 

Stutt er á fallega strönd í næsta nágrenni við bæinn og dásamleg lífsreynsla er að leigja bíl eða fara með rútu upp í sveitaþorp eyjarinnar þar sem er eins og lífið hafi staðið í stað í áratugi. Naxos er fræg fyrir hlýtt viðhorf og frábæra gestrisni íbúanna sem taldir eru matreiða besta mat í Grikklandi. Frá Naxos er einnig hægt að fara í dagsferðir til eyjanna í kring, þ.á.m. Mykonos og Santorini. Svona dagsferðir eru einmitt inni í ferðaáætuninni hjá okkur.(Dagar 2, 3,4,5 og 6)

Að lokinni dásamlegri dvöl á Naxos er kominn tími til að taka saman pjöggur sínar og halda til eyjunnar Amorgos. Á Naxos eruð þið keyrð niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til Amorgos þar sem tekið er á móti ykkur og farið með ykkur á hótel sem þið dveljið næstu 3 nætur.


AMORGOS er einnig í Hringeyjaklasanum og var ein af mikilvægustu miðstöðvm kýkladísku menningarinnar sem blómstraði þar frá 3500 f.kr. Í dag er eyjan þekkt fyrir klaustrið Panagia Hoziviotissa sem byggt er inn í klett 300 m yfir sjávarmáli, en einnig fyrir kvikmynd sem tekin var upp þar og kom í bíóhús út um allan heim árið 1988. Kvikmyndin heitir The Big Blue og er enn í uppáhaldi hjá mörgum, aðallega vegna stórfenglegra sena frá fallegu landslagi og himinbláa sjónum við eyjuna. (Dagar 7,8 og 9) 



Eftir dvölina á þessari fögru bláhvítu eyju skal haldið til Aþenu þar sem þið dveljið tvær síðustu næturnar. Á Amorgos er farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til höfuðborgarinnar og þegar þangað er komið er farið með ykkur á hótel í miðborginni. 

Daginn eftir er boðið upp á nokkra klt. skoðunarferð um borgina, en í eftirmiðdaginn er ykkur frjálst að skoða borgina á eigin vegum.



AÞENA höfuðborg Grikklands er borg andstæðnanna. Annars vegar er borgin vestræn nútímaborg, en hins vegar minnir hún á lítið þorp þar sem mjóar götur og aldagömul hús keppast við að ná athygli vegfarandans. Saga borgarinnar nær aftur um þúsundir ára, eins og hin fögru hof uppi á Akrópólishæð bera vitni um. Fallegar nýklassískar byggingar eru einnig áberandi í borginni og þar er helst að nefna gömlu konungshöllina, fornminjasafnið, háskólabygging-
arnar og Zappeion sýningarhöllina. Ekki má gleyma marmaraleikvangnum Kallimarmaro sem reistur var fyrir fyrstu ólympíuleika nútímans. 

Elsta hverfið í Aþenu liggur í hæðinni fyrir neðan Akrópólis og ber heitið Plaka. Þar er alltaf mikið líf jafnt á degi sem nóttu. Á nýtískulegum eða hefðbundnum kaffihúsum, börum og veitingastöðum þar sem má finna allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Grísk hönnun og minjagripir eru áberandi í verslunum í gamla bænum og þar ættu allir að geta nælt sér í eitthvað sem hjartað girnist.(Dagar 10 og 11)

Dagur 12 - Transfer út á flugvöll og brottför.


11 NÆTUR/12 DAGAR MYKONOS, SANTORINI og FOLEGANDROS


Dagur 1 - koma og transfer á hótel í Aþenu þar sem dvalið er fyrstu nóttina

Dagur 2 - snemma morguns er náð í ykkur á hótelið og farið með ykkur til Píreus hafnarborgar Aþenu þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til eyjunnar Mykonos.


MYKONOS er eyja ríka fólksins í Grikklandi þar sem að snekkjur og villur skiptast um að ná athygli ferðamannsins. Erlendir og innlendir leikarar og söngvarar heimsækja eyjuna á ári hverju og margir þeirra eiga þar sumarhús. Eyjan er fræg fyrir fallegu höfnina með hvítu húsunum sem eru skreytt með hurðum og gluggum í alls konar litum og litlu  mjóu göturnar sem mynda nokkurs konar völundarhús þar sem auðvelt er að villast. Vindmyllurnar sem gnæfa á hæðinni yfir bænum setja fallegan svip á heildarmyndina. (Dagar 2 og 3)



Eftir að hafa kynnst Mykonos er um að gera að kynnast ennþá frægari eyju, en það er auðvitað eyjan Santorini sem allir þekkja. Á Mykonos er náð í ykkur á hótelið ykkar og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til Santorini. Þar er aftur náð í ykkur niður á höfn og farið með ykkur á hótel þar sem þið dveljið næstu 3 nætur.(Dagar 4,5 og 6)



SANTORINI er eyja sem löngum hefur verið kölluð hin fegursta í heimi. Eyjan eins og hún er í dag myndaðist í miklu sprengigosi árið 1628 f.kr., þegar helmingur eyjarinnar sökk í sæ og myndaði gíg sem er með þeim stærstu sem af er vitað. Innsiglinginn í gegnum gíginn er ógleymanleg því útsýnið upp á land er stórfenglegt þar sem tveir stærstu bæjirnir hanga utan í gígbarminum. Eyjan er fræg fyrir stórkostlegt landslag, forna sögu, þ.á.m. bæinn Akrótiri sem hvarf undir ösku í sprengigosinu mikla, og hellahúsin sem byggð eru inn í klettinn og virðast oft hanga í lausu lofti.

Þegar dvöl ykkar lýkur á þessari ótrúlegu eyju lýkur er upplagt að sjá hina hliðina á eyjalífinu í Grikklandi. Þið siglið frá hinni ferðamannglöðu Santorini yfir til litlu eyjunnar Folegandros, þar sem aðeins búa 765 íbúar og lífið er miklu rólegra, yfirvegaðra og upprunalegra heldur en á stærri eyjunum. Á Santorini er náð í ykkur og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip til Folegandros. Þegar þangað er komið er náð í ykkur og farið með ykkur á hótel þar sem þið dveljið næstu 3 nætur.(Dagar 7, 8 og 9)


FOLEGANDROS er hefðbundin grísk eyja þar sem íbúarnir halda upp á forna siði og venjur. Maturinn er einfaldur, grískur, upprunalegur og sérlega góður. Bærinn hefur oft verið valinn af hinum ýmsu ferðablöðum sem einn af fallegustu litlu bæjum í Evrópu. Á Folegandros er hægt að virða fyrir sér í rólegheitum húsin sem eru kölkuð skjannahvít í hinum klassíska Hringeyjabyggingarstíl og eru skreytt litríkum blómum. Strendurnar eru fámennar og sjórinn tekur öll litbrigði hins bláa lits.



Eftir 3 daga á þessari einstöku eyju er kominn tími á að snúa aftur til meginlandsins. Náð er í ykkur á hótelið ykkar og farið með ykkur að höfninni þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til Aþenu. Í Aþenu er tekið á móti ykkur og farið með ykkur á
hótel í miðborginni þar sem þið dveljið síðustu 2 næturnar.(Dagar 10 og 11)


AÞENA höfuðborg Grikklands er borg andstæðnanna. Annars vegar er borgin vestræn nútímaborg, en hins vegar minnir hún á lítið þorp þar sem mjóar götur og aldagömul hús keppast við að ná athygli vegfarandans. Saga borgarinnar nær aftur um þúsundir ára, eins og hin fögru hof uppi á Akrópólishæð bera vitni um. Fallegar nýklassískar byggingar eru einnig áberandi í borginni og þar er helst að nefna gömlu konungshöllina, fornminjasafnið, háskólabyggingarnar og Zappeion sýningarhöllina. Ekki má gleyma marmaraleikvangnum Kallimarmaro sem reistur var fyrir fyrstu ólympíuleika nútímans. 


Elsta hverfið í Aþenu liggur í hæðinni fyrir neðan Akrópólis og ber heitið Plaka. Þar er alltaf mikið líf jafnt á degi sem nóttu. Á nýtískulegum eða hefðbundnum kaffihúsum, börum g veitingastöðum má finna allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Grísk hönnun og minjagripir eru áberandi í verslunum í gamla bænum og þar ættu allir að geta nælt sér í eitthvað sem hjartað girnist.

Dagur 12 - transfer út á flugvöll og brottför


MAMMA MIA

11 NÆTUR/12 DAGAR SKIAÞOS og SKOPELOS

Dagur 1 - koma og transfer á hótel í Aþenu þar sem dvalið er fyrstu nóttina

Dagur 2 - deginum eytt í höfuðborginni og farið í skoðunarferð um morguninn. Kvöldflug til eyjunnar Skiaþos. 


SKIAÞOS er eyja í svokölluðum Skrefeyjaklasa í Norður Eyjahafinu, en Skrefeyjarnar samanstanda af 4 eyjum, Skiaþos, Skopelos, Alonissos og Skyros. Eyjan er paradís á jörð með grænum greniskógum og kristalstæru túrkísbláu hafi. Þrátt fyrir mikla fjölgun ferðamanna á síðustu áratugum, hefur eyjan haldist óspillt og myndræn með yfir 60 fallegum og tandurhreinum ströndum. Hvort sem þú ert að leita að fámennum afskekktum ströndum eða ströndum með allskyns vatnasporti, þá er um margt að velja á Skiaþos.(Dagur 2, 3 og 4)


Bærinn á Skiaþos er nýr bær byggður ofan á öðrum fornum á fyrri hluta 19. aldar. Hann byggðist í kringum hina náttúrulegu höfn sem í dag fyllist af seglbátum og snekkjum á sumrin. Bærinn er líflegur á daginn því þar er að finna fjölda verslana og kaffihúsa og á kvöldin fyllast veitingastaðir og næturklúbbar af ferðamönnum og heimamönnum sem eru til í tjúttið.
Einnig eru 25 gönguleiðir á eyjunni fyrir göngufólk og náttúruunnendur.  






SKOPELOS er önnur lítil eyja sem tilheyrir Skrefeyjunum og er alveg jafn mikil paradís og Skiaþos með blágrænum sjó og þéttum grænum furuskógi. Sagan segir að Stafylos (sem þýðir vínber á grísku) sonur Dyonisus og Ariadne hafi stofnað fyrstu borgina á eyjunni og það var kannski þess vegna sem vínið frá eyjunni var frægt um allt Miðjarðarhaf til forna. Á eyjunni eru dásamlegar strendur og sjórinn er ótrúlega tær. Bærinn á Skopelos er lítill og sjarmerandi í þeim gríska stíl sem   
tilheyrir Skrefeyjunum.


Í dag er Skopelos fræg fyrir það að kvikmyndin Mamma Mia var að mestu leyti tekin upp á hinum ýmsu stöðum á eyjunni. Liðsmenn hljómsveitarinnar Abba höfðu lengi verið hrifnir af Skrefeyjunum og koma enn á hverju ári í sumarleyfi til Grikklands. Hin fræga sena þegar allir eru að fara í brúðkaupið var kvikmynduð á klettinum sem ber nafnið Agios Ioannis. Stjörnur myndarinnar dvöldu einnig lengi á eyjunni og sumar þeirra hafa heimsótt hana aftur og aftur.(Dagur 5, 6, 7, 8 og 9)


Eftir frábæra daga á þessari yndislegu eyju er náð í ykkur á hótelið og farið með ykkur niður á höfn þar sem þið stígið á skip sem flytur ykkur til þorpsins Agios Konstantinos á meginlandinu. Þar bíður rúta sem flytur ykkur áfram til Aþenu. Þar er náð í ykkur og farið með ykkur á hótel í miðborginni þar sem þið dveljið næstu 2 nætur. (Dagar 10 og 11)

AÞENA höfuðborg Grikklands er borg andstæðnanna. Annars vegar er borgin er borgin vestræn nútímaborg, en hins vegar minnir hún á lítið þorp þar sem mjóar götur og aldagömul húskeppast við að ná athygli vegfarandans. Saga borgarinnar nær aftur um þúsundir ára, eins og hin fögru hof uppi á Akrópólishæð bera vitni um. Fallegar nýklassískar byggingar eru einnig áberandi í borginni og þar er helst að nefna gömlu konungshöllina, fornminjasafnið, háskólabyggingarnar og Zappeion sýningarhöllina. Ekki má gleyma marmaraleikvangnum Kallimarmaro sem reistur var fyrir fyrstu ólympíuleika nútímans. 


Elsta hverfið í Aþenu liggur í hæðinni fyrir neðan Akrópólis og ber heitið Plaka. Þar er alltaf mikið líf jafnt á degi sem nóttu. Á nýtískulegum eða hefðbundnum kaffihúsum, börum g veitingastöðum má finna allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. grísk hönnun og minjagripir eru áberandi í verslunum í gamla bænum og þar ættu allir að geta nælt sér í eitthvað sem hjartað girnist.

Dagur 12 - transfer út á flugvöll og brottför

Κυριακή 18 Ιανουαρίου 2015

Hér koma nokkrar tillögur að flugi til Aþenu fyrir þá sem hafa áhuga á ferðinni minni ,,Seiðandi Zakynthos´´

Verðin sem koma fram hér eru eins og þau eru í dag 18. janúar
-------------------------------------------------
26.maí Reykjavík   Aþena

Lufthansa (LH 857) 14.10 19.50 Frankfurt

50 mín 

Lufthansa (LH 1284) 20.40   00.25 Aþena 

4. júní Aþena   Reykjavík

Lufthansa (LH 1285) 06.05   08.10 Frankfurt

2 klt

Lufthansa (LH 856) 10.10   12.00 Reykjavík

Verð u.þ.b. 65.000 isk
-------------------------------------------------
26. maí Reykjavík   Aþena

Vueling (VY 8561) 01.40   07.55 Barcelona

3 klt

Vueling (VY 8100) 11.35   15.25 Aþena

4. júní Aþena   Reykjavík

Vueling (VY 8101) 11.40   13.45 Barcelona

8 klt. og 35 mín.

Vueling (VY 8560) 22.20   00.50 Keflavík

Verð u.þ.b. 65.000 isk
------------------------------------------------
26. maí Reykjavík   Aþena

Icelandair (FI 202) 01.00   06.00 Kaupmannahöfn

5 klt. og 30 mín.

Aegean (A 3811) 11.30   15.40 Aþena

4. júní Aþena   Reykjavík

Vueling (VY 8101) 11.40   13.45 Barcelona

8 klt. og 35. mín

Vueling (VY 8560) 22.20   00.50 Keflavík 

Verð u.þ.b 78.000 isk
------------------------------------------------
26. maí Reykjavík   Aþena

Icelandair (FI 202) 01.00   06.00 Kaupmannahöfn

2 klt. og 40 mín.

SAS (SK 777) 08.40   12.50 Aþena

4. júní Aþena   Reykjavík

SAS (FI 7436) 13.40 15.55 Kaupmannahöfn

3 klt. og 50 mín.

Icelandair (FI 213) 19.45   20.55 Keflavík

Verð u.þ.b. 88.000 isk


Góðar leitarsíður eru www.dohop.com og www.momondo.com